Geri Allt var eini verktakinn við byggingu hótelsins sem lauk sínu verki á umsömdum tíma án athugasemda við úttekt.
Umsögn byggingastjóra
Daníel og hans starfsmenn unnu fyrir okkur við byggingu á Hóteli í miðbæ Reykjavikur.
Sem pípulagningar meistari kláraði hann verkið á réttum tíma og á umsömdu verði.
Ég get mælt með honum í verkefni stór eða smá.
Þór Sigurðsson
Arkitekt
Byggingarstjóri
Umsögn verkkaupa:
Danni og félagar sáu um að gera upp baðherbergi og klósett fyrir mig. Þeir veittu mér frábæra ráðgjöf við val á efni, hönnun á rými og tókst þeim að klára verkið á innan við viku. Mæli hiklaust með þeim.
Agnar Sigmarsson
Umsögn verkkaupa
Fyrirmyndar fagmenn bæði í pípulögnum og flísalögn.
Hugsa í lausnum og leysa öll mál af fagmennsku.
Veita góða ráðgjöf og leiðbeiningar.
Fá 10 í einkunn fyrir vinnubrögð, framkomu, fagmennsku og allt annað.
Bjarni Geir Alfreðsson
Verkefnastjóri Samhjálpar
„Bjarni Snæðingur“
Breyttum baðherbergi fyrir hana Guðrúnu.
Rifum allt úr herberginu, breyttum frá baðkari í sturtu, settum handklæðaofn, flísalögðum og fullkláruðum allt baðherbergið að loftinu undanskildu, það var ekki málað.
Gerðum við baðherbergi í Grafarholti sem hafði orðið fyrir vatnsskemmdum, breytt var um skipulag á baðherberginu, sturta söguð niður í gólfið, sett innbyggð blöndunartæki, allt flísalagt og sett upp ný tæki og innréttingar ásamt gólfhita og handklæðaofni.
Endurlögðum alla pípulögn í eldri hluta hótelsins, smíðuðum nýjan kyndiklefa og lögðum nýja stofna yfir í nýrri hluta hótelsins.
Flísaleggjum oft milli eldhúsinnréttinga
Endurlögðum hitakerfi í gamallt einbýli í Vogunum, settir voru nýjir ofnar og pípulögnin var sett utanáliggjandi í pressuðu stáli.
Við smíðum allar stærðir og gerðir af grindum fyrir heita potta, snjóbræðslur, gólfhita, neysluvatn ofl.